The Peppers

We are the peppers

18.01.2008 00:13:39 / Vera Pera

jæja!!!!

ELZKU SIGGA OKKAR!!! INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ....!!!! hafðu það sem allra allra bezt í dag og skemmtu þér svo vonandi ótrúlega vel á morgun með stelpunum út að borða!!!!! SKÁL FYRIR SIGGU!!! 

 

jæja... jólin búin að allar búnar að borða og drekka nóg held ég... :D

er ekki kominn tími á að plana sumarbústaðaferð sem fyrst?? eða um leið og við getum keyrt á litlu púddunum okkar!! og svo er nottlega páskahittingur!! voru ekki allir voða ánægðir með að það yrðu bara settir tveir og tveir í nefnd??

ætla svo að reyna að henda inn myndum af litlu jólunum og áramótunum hingað inn....

Vera Pera GeimVera


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 17:27:20 / Sigga

Bara nokkur atriði

Nú styttist óðum í jólamatinn okkar og er ég persónulega orðin mega spennt, þetta verður eins og alltaf bókað rosa gott og skemmtilegt hjá okkur:D
Vildi bara minna á jólahúfurnar, lítinn pakka, heima hjá Veru, mæting sem fyrst, taka góða skapið+jólaskapið með og ummmmmm já koma svangar, heheheheh:lol:

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 10:56:14 / Vera Pera

jólin jólin út um allt...

... út um allt..

heheh er lagið ekki svona??? :haha:

öss öss maður þarf að fara að draga fram jóladiskana vegna þess að núna eru aðeins 2 vikur í jólamatinn hjá okkur:!:  Spurning um að fara að ákveða hvað þarf að kaupa og hvað þarf að gera? Ætlum við að vera heima hjá mér? hvað verðum við margar? hvað eiga jólagjafirnar að kosta? hvað ætlum við að hafa í eftirrétt? mikið sem að þarf að spá og spekúlera. er búið að hafa samband við allar uppá hvort þær komist? hverjar erum við í dag? margt sem að þarf að plana

TJÁIÐI YKKUR NÚ UM MÁLIÐ STELPUR - LITLU JÓLIN ERU EFTIR 2 VIKUR.


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 09:04:28 / Sigrún

Jólaklúbburinn Hó hó hó....

Sælar skvísur.

Ég var að velta fyrir mér hvort við ættum ekki að starta Jólaklúbbnum þetta árið?!  Nú er kominn nóvember og 49 dagar til jóla 8)  Held að það væri ekki óvitlaust að byrja á föndrinu og jólakortagerðinni sem fyrst svo við náum að klára það sem við settum okkur t.d. fyrir í fyrra og náðum ekki að klára.... :haha:

Hvað segið þið um að halda fyrsta klúbbinn 13. nóvember heima hjá mér?  Hentar þessi tími?

Endilega kommentið á þetta...

Kveðja, Sigrún Ósk peppersmeðlimur


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 08:13:33 / Sigga

nýtt nýtt

hellú alles sammen. Ég var að spá hvort þið vilduð skipta um dag og hafa þetta frekar fimmtudaginn 29 nóv. ??????
Allar að svara þessu helst:$

 

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 11:22:38 / Vera Pera

JÓLAMATURINN

jæja stelpur.... var búin að heyra að ykkur fannst kominn tími til að ákveða hvenær við höldum jólamatinn og sniðugt að reyna að festa dagsetningu sem fyrst.

Hvernig líst ykkur á fyrstu aðventuhelgina 30.nóv-2.des (fös, lau eða sun)

tjáiði ykkur um þetta og komiði þá endilega með uppástungu um aðrar dagsetningar ef þessi helgi hentar ykkur ekki.


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 16:06:10 / Vera Pera

öss öss stelpur!!!

jæja stelpur nú gengur þetta ekki lengur!!!

Var engin krýning í ár??? hvernig er það?? ég sé ekki betur en við séum allar jafn miklar peppers og þegar við byrjuðum þetta - nema þá heiða sem að stendur sig í stykkinu komin með mann og íbúð... reyndar nokkrar af okkur komnar með íbúð.. en karlarnir sitja á hakanum... veit ekki hvernig stendur á því þar sem að við erum nú allar afburðamyndarlegar stelpur/konur (hvað viljum við láta kalla okkur)

er þetta allt dottið upp fyrir hjá okkur??? við höldum nú áfram að hittast allar, en það er alveg hætt að vera eitthvað þema hjá okkur?? vantar eittvað svona þemakvöld

Svo styttist nú í það að hluti hópsins skellir sér til NY - held það sé nú meirihlutinn er einhver önnur en ég sem fer ekki??

nokkur afmæli á næsta leiti - allavegana sella ég og heiða framundan (misminnir mig nokkuð?)

hleypið nú smá lífi í þetta - veit að þið viljið endilega segja einhverja krassandi sögu hérna...

bara láta vita líka að ég er bráðum að verða fullorðin eða eitthvað (25ára) alveg bráðum... og ÞÉR er boðið ...


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 11:03:33 / Sigga

Er þetta dautt...

mér sýnist sem að bloggið okkar sé að deyja út, finnst það persónulega svoldið sorglegt, hvað með ykkur:(
Það er nú ekkert möst að skrifa e-ð merkilegt né sniðugt, bara setja höfuðið í bleyti og finna e-ð til að halda blogginu lifandi:D

Lengi lifi Peppers bloggið

NB. ég og Sigrún fundum annað rosa gott lag fyrir okkur, það er hið fræga lag sem Eygló söng einu sinni hástöfum niðri bæ, All by myself sem vinkonu okkar Celine. Tökum það í næsta partýi :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 15:22:12 / Vera Pera

halló halló

sá að einhver okkar hafði verið að skrifa eitthvað - en það var ekki birt... 8| þannig að ég henti því bara þarna fram.

Núna er sumarið alveg að koma og þurfum við að fara að gera eitthvað - við höfðum engan páskamat :evil: finnst það ekki sniðugt.

Þurfum að fara að gera fullt fullt saman - drífa sig að koma með hugmyndir svo við getum hrint einhverju í gang!


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 11:48:09 / Sigrún

Það er kominn föstudagur.....

Já stelpur það er sko kominn föstudagur og allt að gerast í kvöld bara.  Þær peppers-skvísur sem að eru bendlaðar á einhvern hátt við viðskiptalífið og/eða viðskipti almennt eru sko að fara á djammið í kvöld...  Ég get ekki sagt að ég sé að fara á eins mikið skrall og þær en maður kíkir nú á skvísurnar og kannar hvort hlutirnir séu ekki eins og þeir eigi að vera, þ.e. að Sigga og J-Low séu ekki alveg örugglega með karlmann upp á arminn:) 

En það má með sanni segja að mottó sumra peppersmeðlima undanfarnar vikur hafi verið: "það hjálpar þér


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 11:33:46 / Vera Pera

SIGGA AFMÆLI

:D TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ SIGGA!!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 09:32:32 / Sigga

Jólamaturinn er á morgun...

þannig að ég vil minna ykkur á að koma með jólahúfurnar sem við keyptum í fyrra, þær sem voru ekki í fyrra reyna kannski að redda sér húfu.  Þetta er nú bara svona upp á stuðið:)
Svo er það pakkaleikurinn allar að kaupa e-ð fyrir 500 kall.
Síðast en ekki síst þá er mæting hjá Veru, kl:18

Hlakka til að sjá ykkur á morgun :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 11:55:41 / Sigrún

Jólaklúbburinn Hó hó hó

Sælar systur,

Jólaklúbburinn Hó hó hó hefur svo sannarlega hafið göngu sína þetta árið og vel það. Jólaklúbburinn hefur til dæmis aldrei byrjað eins snemma og þetta árið. Það hafa verið haldnir tveir klúbbar nú þegar og afraksturinn er gríðarlegur!  Það er mikill kraftur í meðlimum sem hafa verið að mæta í klúbbinn og eru meðlimir með mjög svo háleit markmið þetta árið.  Nefna má að Sigríður er að glíma við mjög svo erfiðan jólasokk og áætla má að hún muni ef til vill glíma við hann á næsta ári líka. Einhverjir hugsa kannski með sér að það sé ekki góð frammistaða en það er síður en svo.  Jólaskokkurinn er mjög erfiður og þarf Sigríður að sauma allskyns perlur og pallíettur í hann.  En Sigríður hefur verið mjög iðin síðustu skipti og er hún á blússandi ferð með hann.  Sigrún til dæmis náði að klára jólasveininn sinn sem mun passa upp á jólakortin hennar í ár og væntir hún þess að hún fái falleg jólakort í ár frá meðlimum Jólaklúbbsins en þess má geta að hún Elva er að gera mjög falleg jólakort í ár og er hún tilbúin til þess að leiðbeina fólki sem er á villigötum í jólakortagerð.  Elva er með áralanga reynslu í jólakortagerð og koma einnig Heiða og Sigga mjög sterkar inn í því, þar sem þær stöllur hafa verið að búa til jólakort s.l. tvö ár eða frá því að Jólaklúbburinn Hó hó hó var stofnaður.  Heiða hefur samt sem áður sagt skilið við jólakortagerð þetta árið eins og fleiri meðlimir þetta árið og mun einbeita sér af fullum krafti við að búa til engla.  En þeir eru mjög flottir!  Sesselja mun einnig glíma við jólasokkinn sem Sigríður er að útbúa og er langt komin með jólasveininn sem mun einnig geyma fyrir hana jólapóstinn í ár.

Ef að aðrir lesendur síðunnar hafa áhuga á því að komast inn í Jólaklúbbinn Hó hó hó þá endilega kommentið og við skulum kanna möguleikann á því hvort sá og hinn sami henti inn í Klúbbinn og passi við samsetningu hans...... nei grín :haha:  Kommentið bara :)  Þess má geta að ekki er nauðsynlegt að föndra jólaföndur heldur er hægt að til dæmis prjóna eins og hún Jóhanna gerði fyrsta kvöldið, en hún er þessa dagana að leggja heilmikla vinnu í að útbúa vettlinga.

Næsti klúbbur er mánudaginn 27. nóvember heima hjá Sigrúnu Ósk :)

 

Kveðja,

Sigrún Ósk meðlimur Jólaklúbbsins Hó hó hó


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 19:44:26 / Sigga

ný dagsetning

 Þá er komin ný tímasetning á jóladæmið, það er þá föstudagurinn 1.des.  Held að flestar komisr þá, kommenta á þessa dagsetningu


» 17 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 11:29:35 / Sigga

Jólamaturinn...

geta allar komist í jólamatinn fyrstu helgina í des, það er þá laugardagurinn 2 des. held ég, það komast nebbla ekki 3 þarna 16 des.

Kommentið á þetta.  Þurfum að fara að negla þetta niður, þetta var nottla snilldi í fyrra:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Dagsetning
10. febrúar 2012
Klukkan
Gestapeppers